PERSÓNUVERNDARYFIRLÝSINGAR
Þessi persónuverndarstefna gildir um eftirfarandi aðila:
Brewster Inc, þegar það stundar viðskipti sem The Banff Jasper Collection og FlyOver Canada:
Glacier Park, Inc, þegar það stundar viðskipti sem The Glacier Park Collection;
CATC Alaska Tourism Corporation þegar það stundar viðskipti sem The Alaska Collection; og
Esja Attractions ehf. þegar það stundar viðskipti sem FlyOver Iceland.
FlyOver Las Vegas LLC
Pursuit Investment Holdings, Inc.
Pursuit Collection, Inc.
FlyOver Attractions, Inc.
Atlantic L ehf þegar það stundar viðskipti sem Sky Lagoon.
Pursuit er með starfsemi í nokkrum löndum. Athugaðu að við kunnum að safna, geyma og vinna úr persónuupplýsingum þínum í Kanada, Bandaríkjunum eða öðru landi en landinu sem þú býrð í. Þessi persónuverndarstefna ásamt skilmálum okkar setur fram reglur okkar um söfnun, notkun, deilingu og varðveislu upplýsinga sem gilda hjá Pursuit á heimsvísu. Auk þess getur hvert land eða ríki þar sem við störfum eða stundum viðskipti lagt fram sérstakar kröfur varðandi persónuupplýsingar sem við fáum eða söfnum. Pursuit leggur sig fram um að uppfylla allar kröfur persónuverndarlaga sem eiga við um starfsemi fyrirtækisins.
Persónuverndaryfirlýsing fyrir Kanada
Við förum að gildandi kanadískum lögum um gagnavernd, svo sem lögum um vernd persónuupplýsinga og rafrænna skjala (PIPEDA), persónuverndarlögum í Alberta-fylki (PIPA) og öðrum sambandsríkis- og héraðslögum í Kanada, sem eru í meginatriðum svipuð, og gilda um söfnun, notkun og birtingu persónuupplýsinga. Við munum ekki safna, nota eða deila persónuupplýsingum þínum í öðrum tilgangi en þeim sem þessi persónuverndarstefna heimilar, nema með þínu samþykki. Við svörum beiðni þinni um að fá aðgang að persónuupplýsingum eins fljótt og auðið er.
Við kunnum að safna ákveðnum gerðum persónuupplýsinga frá þér, sem lýst er í hlutanum Persónuupplýsingar sem við söfnum hér að ofan
Við munum aldrei selja, nota í viðskiptum, leigja, gefa eða nota nafn þitt, netfang eða aðrar persónulegar upplýsingar sem þú kannt að hafa deilt með okkur eða velur að deila með okkur í framtíðinni í neinum öðrum tilgangi en þeim að veita þér upplýsingar eða þjónustu sem þú hefur óskað eftir eða krafist er samkvæmt gildandi lögum. Það er ávallt þitt val hvort þú lætur okkur persónuupplýsingar í té eða ekki og ef þú tilkynnir okkur ekki um að þú hafnir notkun okkar á upplýsingunum þínum, eins og lýst er í þessari persónuverndarstefnu, munum við líta svo á að þú hafir samþykkt slíka áframhaldandi notkun.
Persónuverndaryfirlýsingar fyrir Evrópusambandið (GDPR)
Almenna persónuverndarreglugerðin (GDPR) og gagnaverndarlöggjöf Sviss veitir skráðum aðilum tiltekin réttindi með hliðsjón af persónuupplýsingum. Þessi réttindi fela meðal annars í sér réttinn til að fara fram á það við Pursuit að fá aðgang að persónuupplýsingum, láta leiðrétta þær eða eyða þeim, réttinn til að takmarka úrvinnslu þeirra, réttinn til að andmæla úrvinnslu þeirra, réttinn til að flytja eigin gögn og réttinn til að leggja fram kvörtun hjá eftirlitsyfirvaldi.
„Ábyrgðaraðili gagna“ sem ber ábyrgð á persónuupplýsingum sem berast eða er safnað af deildum Pursuit er samvarandi lögaðili Pursuit sem tilgreindur er efst í hlutanum „PERSÓNUVERNDARYFIRLÝSINGAR“ hér að framan.
- Við styðjumst við lögmæta hagsmuni sem lögmætan grundvöll okkar fyrir úrvinnslu nema varðandi þá úrvinnslu sem nauðsynleg er til að veita einstaklingi þá þjónustu sem hann kaupir hjá okkur. Þessir hagsmunir fela í sér, án takmarkana, að gera heimsóknir þínar hjá okkur eins ánægjulegar og mögulegt er, að bæta eignir okkar og þjónustu og gera okkur grein fyrir ferðalagi þínu og tengdum áhugamálum til að við getum haldið áfram að sérsníða og viðhalda tengslum við þig. Við áskiljum okkur rétt til að vinna úr upplýsingum þínum í þeim tilgangi sem fram kemur í þessari persónuverndarstefnu eða öðrum tilgangi sem þú samþykkir. Þú átt rétt á að andmæla hvers kyns vinnslu á persónuupplýsingum þínum. Þú getur sett fram slíka beiðni með því að hafa samband við Pursuit eins og fram kemur í hlutanum Hafa samband við Pursuit hér fyrir neðan.
- Kanada tryggir fullnægjandi gagnavernd í skilningi almennu persónuverndarreglugerðinnar.
- Gagnaflutningur til deilda og hlutdeildarfélaga Pursuit í Bandaríkjunum verður framkvæmdur í samræmi við Privacy Shield-rammaáætlun ESB og Bandaríkjanna og Privacy Shield-rammaáætlun Sviss og Bandaríkjanna, eins og við á. Lesið textann hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar um fylgni okkar við Privacy Shield.
Privacy Shield fyrir skráða aðila frá aðildarlöndum Evrópusambandsins og Sviss
Einingar Pursuit-vörumerkis Vlad Corp sem falla undir þessa persónuverndarstefnu og staðsett eru í Bandaríkjunum (þ.e. Glacier Park, Inc og CATC Alaska Tourism Corporation) uppfylla Privacy Shield-rammaáætlun ESB og Bandaríkjanna og Privacy Shield-rammaáætlun Sviss og Bandaríkjanna eins og hún er sett fram hjá bandaríska viðskiptaráðuneytinu varðandi söfnun, notkun og varðveislu persónuupplýsinga frá aðildarríkjum Evrópusambandsins (og Íslandi, Liechtenstein og Noregi) Sviss og Bretlandi sem fluttar eru til Bandaríkjanna samkvæmt Privacy Shield. Við höfum staðfest að við fylgjum reglum Privacy Shield með tilliti til slíkra gagna. Komi til árekstrar á milli reglnanna í þessari persónuverndarstefnu og réttinda skráðra aðila samkvæmt Privacy Shield skulu reglur Privacy Shield gilda. Hægt er að fá frekari upplýsingar um Privacy Shield-áætlunina og skoða vottorðasíðu okkar á https://www.privacyshield.gov/
Við lútum stjórnunar- og framkvæmdarheimildum Alríkisviðskiptastofnunar Bandaríkjanna (FTC) með tilliti til persónuupplýsinga sem eru mótteknar eða fluttar í samræmi við Privacy Shield-rammaáætlanirnar.
Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur, sem telja má sanngjarnt, til að viðalda öryggi persónuupplýsinga þinna, veita þér þátttöku-/afþökkunartilkynningar eins og lög kveða á um þar sem persónuupplýsingum er safnað, nota gögn á þann hátt sem samræmist upprunalegum tilgangi söfnunar og bjóða þér fyrirkomulag sem hjálpar til við að tryggja að persónuupplýsingar þínar eru nákvæmar og áreiðanlegar. Ef við flytjum persónuupplýsingar þínar eða önnur gögn sem falla undir Privacy Shield til þriðja aðila kunnum við að vera skaðabótaskyld fyrir skaða sem hlýst af brotum á gildandi lögum sem verður til vegna slíkrar framsendingar, að því gefnu að við berum ábyrgð á tilvikinu sem veldur slíkum skaða.
Hugsanlega er þess krafist að við deilum persónuupplýsingum þínum til að bregðast við lögmætum beiðnum yfirvalda eða öðrum kröfum sem lög kveða á um, þ.m.t. til að uppfylla landsbundnar kröfur um öryggi eða löggæslu, og því áskiljum við okkur rétt til þess.
Í þeim tilfellum þar sem við miðlum persónulegum upplýsingum til þriðja aðila eða ef nota á þær upplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þeim var upphaflega safnað fyrir, verður þér gefinn kostur á að hafna slíkri framsendingu persónuupplýsinga þinna með því að tilkynna okkur um ákvörðun þína í tölvupósti eða með því að skrifa okkur bréf eins og fram kemur í hlutanum Hafa samband við Pursuit hér að neðan.
Þú hefur rétt á að fá aðgang að, leiðrétta eða eyða persónuupplýsingum þínum og þú getur einnig takmarkað notkun eða birtingu okkar á persónuupplýsingunum að því gefnu að þú sendir okkur tilkynningu um slíka beiðni í tölvupósti á [email protected], [email protected] eða með því að senda okkur bréf á: Viad Corp., Attn: Chief Compliance Officer, 1850 N. Central Avenue, Suite 1900, Phoenix, Arizona 85004-4565.
Í samræmi við reglur Privacy Shield skuldbindum við okkur til að leysa úr kvörtunum varðandi persónuvernd þína og söfnun okkar eða notkun á persónuupplýsingum þínum sem fluttar eru til Bandaríkjanna í samræmi við Privacy Shield. Ríkisborgarar í Evrópusambandinu, EES, Bretlandi og Sviss sem vilja koma á framfæri spurningum eða kvörtunum varðandi Privacy Shield skulu fyrst hafa samband við yfirmann reglufylgni í móðurfyrirtæki okkar, Viad Corp, með því að senda tölvupóst á [email protected] eða með því að senda okkur bréf á: Viad Corp., Attn: Chief Compliance Officer, 1850 N. Central Avenue, Suite 1900, Phoenix, Arizona 85004-4565.
Við höfum enn fremur skuldbundið okkur til að vísa óleystum kvörtunum vegna persónuverndar samkvæmt reglum Privacy Shield til óháðs úrlausnarúrræðis fyrir ágreiningsmál, BBB EU PRIVACY SHIELD, sem er úrlausnarkostur sem starfræktur er í Bandaríkjunum og er ekki rekinn í hagnaðarskyni á vegum ráðs um bætta viðskiptahætti fyrirtækja (Council of Better Business Bureaus). Ef þú færð ekki tímanlega staðfestingu á kvörtun þinni eða ef ekki er unnið úr kvörtun þinni með fullnægjandi hætti skaltu fara á vefsvæði BBB EU PRIVACY SHIELD á www.bbb.org/EU-privacy-shield/for-eu-consumers/ til að fá frekari upplýsingar og til að leggja fram kvörtun. Þessi þjónusta er veitt án endurgjalds.
Ef ekki er hægt að leysa úr kvörtun þinni varðandi Privacy Shield með áðurnefndum leiðum getur þú, við ákveðin skilyrði, beitt bindandi málsmeðferð fyrir gerðardómi fyrir einstakar kröfur sem annað úrlausnarfyrirkomulag hefur ekki leyst úr. Sjá viðauka 1 fyrir Privacy Shield á https://www.privacyshield.gov/article?id=ANNEX-I-introduction
Persónuverndaryfirlýsing fyrir Kaliforníu
Samkvæmt kafla 1798.83 í lögum um réttindi borgara í Kaliforníuríki (California Civil Code) geta gestir okkar sem eru íbúar Kaliforníuríkis óskað eftir ákveðnum upplýsingum hvað varðar birtingu á persónulegum upplýsingum til þriðju aðila vegna beinnar markaðssetningar þeirra, og fengið þær frá okkur einu sinni á ári, endurgjaldslaust. Til að uppfylla lagaskilyrði Kaliforníuríkis sem krefjast þess að vefsvæði birti persónuverndarstefnur sínar með áberandi hætti látum við eftirfarandi samantekt fylgja með.
Tilgangur þessarar persónuverndarstefnu er að bera kennsl á persónuupplýsingar sem við söfnum, lýsa því hvernig þú getur skoðað og breytt þessum persónuupplýsingum, lýsa því hvernig þú getur kynnt þér breytingar á persónuverndarstefnunni og gefa þér möguleika á að afþakka ákveðna markaðssetningarstarfsemi. Ef þú vilt afþakka að fá sendar beiðnir frá okkur, leggja fram beiðni um breytingu á persónuupplýsingum þínum eða láta fjarlægja þær úr kerfum okkar, eða ef þú vilt ekki að við deilum þeim með samstarfsaðilum okkar í markaðssetningarskyni getur þú skráð óskir þínar með því að hafa samband við Pursuit eins og fram kemur í hlutanum Hafa samband við Pursuit hér að neðan.